Auglýsing

tadaraddaramm...!

04. maí 2007 klukkan 23:26
halló halló....já ég fattaði lykilorðið... vííí...

já og núna ætla ég að koma með eitthvað mjög innihaldsmikið blogg baaaara fyrir ykkur ...já...hmmm...

Það styttist óendanlega hratt í það að ég útskrifist..! sem þýðir að ég þarf að finna mér útskriftarföt...sem þýðir að ég þar að fara suður...sem þýðir að það er næstu helgi sem ég þarf að fara suður... nema ég útskrifist bara á brókinni...sjúkrahúsgrænum drekaflugumynstruðum  ömmubrókum...

bjakk... og það að ég sé að fara að utskrifast bráðum þýðir að ég þarf að fara að ákveða hvað ég geri næsta haust...

ég held að ég verði bara rottuveðimaður í Peking...það gæti reyndar orðið soldið spennandi...veiði þær og þjálfa þær í því að þjóna mér...mér er bara farið að lítast vel á þetta... já...ég held að ég fari að veiða rottur í Peking...

farin til Peking

MaY tHe ScHwArTzZzZ bE wItH yOu....!

28. mars 2007 klukkan 18:58

haha...núna er komið að ykkur að gera svona við mig....stal þessu af síðunni hennar Lilja :D

Hvað er fullt nafn mitt?

Hvenær á ég afmæli?

Hvernig hittumst við ?

hvað fannst þér um mig þegar við hittumst?

Hvenær hittumst við seinast?

Hvað er uppáhalds:
-maturinn minn?
-hljómsveitin mín?
-kaffihúsið mitt?
-dagurinn minn?

Hvernig myndir þú lýsa mér í 3 orðum?

Hvar á ég heima?

Höfum við kysst?

erum við góðir vinir?

hef ég treyst þér fyrir leyndarmáli? og þá hvaða leyndarmáli?

á ég :
-dýr?
-barn? 
-ipod?
-bíl? 
-íbúð? 

Hernig eru augun mín á litinn?

Höfum við farið á trúnó? 

Hefuru séð mig gráta?

höfum við farið í ferðalag saman?

höfum við farið á tónleika saman?

veistu við hvað ég vinn?

er ég í skóla?

hvaða líkamshluti á mér er sérstakastur?

hvaða árstími finns mér skemmtilegastur?

ef þú myndir festast með mér á eyðieyju í nokkra daga, hvaða tvo hluti myndir þú taka með?

ef ég myndi hringja í þig og biðja þig um að hitta mig og gera eitthvað, hvar myndum við hittast og hvað myndum við gera?

hvað finnst mér alveg rosalega skemmtilegt að gera? 

ef þú myndir koma mér á óvart hvað myndir þú gera fyrir mig ?

hver er besti vinur minn?

hver er besta vinkona mín? 

hvað er uppáhalds drykkurinn minn?

viltu að ég svari þessu líka fyrir þig ?

Sælinú sælinúúúúú.....

21. mars 2007 klukkan 22:48
jæja þá er helgin búin... þetta var G Ó Ð helgi... hef sjaldan verið eins þreytt og þunn og veik eftir 2 daga.

Ég mætti til rvk á sunnudaginn eftir óvenju LAAANGA og LEIÐIIIINLEGA klukkutíma í rútuhelvíti. Rifjaði upp óskemmtilegar minningar frá því að ég var á leiðinni út á krók í skólarútunni. Alveg ótrúlegt hvað rúturnar eru alltaf fullar að stórskrítnu fólk ... já ... og fólki sem getur engan vegin haldið fretinu inn í sér (Lilja... þú átt greinilega heima í rútu!) Alla leiðina suður var einhver að reka við á svona 10 mínútna fresti... og þetta var greinlega enginn PRUMPviðvaningur. Í hvert skipti sem þessi einhver rak við þá var eins og einhver hefði stungið mér upp í beljugörn! I alvöru.. mér sveið í heilann! Svo var einhver krakki sem gerð ekkert annað en að skipta um sæti og spurja mig hvað klukkan væri og hvort að ég hefði séð skóinn hans! pottþétt hann sem var að reka við...! Mikið rosalega var ég fegin þegar ég sá BSI húsið og síðan Söndru og Frímann :D

Þegar ég kom í húsó og hitti Lilju... þá fórum við niðrí bæ með Sidda. Við ætluðum ekkert að vera neitt lengi niðrí bæ, ætluðum bara eitthvað að rölta um með Sidda. En nei... ekkert svoleiðis... þetta endaði bara með fokkalegu djammi... og ég bara í einhverjum kósífötum...mikið var það gott að vera í buxum sem ég fann ekki fyrir og flatbotna skóm...! Ég vorkendi aumingja Söndru, því auðvitað þurfti ég að hringja fylleríssímtal...

Daginn eftir fórum við í Kringluna ... þetta var PEEEEIN. Ég var svo þunn! En ég afrekaði það allavega að eyða allt of miklum pening..hehehe.
Laugardagsdjammið var ekki eins hresst... ég var soldið þunn ennþá um kvöldið... og búin að næla mér í einhverja pest :S æði æði

Sunnudagurinn var ÓGEÐ... þá var ég sko orðin hressilega veik! En einhvernvegin þurfti ég að koma mér heim þótt að mig langaði ekkert til þess að hreifa á mér rassgatið :S vitið þið það að það kostar 1000 kall að vera í leigubíl í 5 mínútur?!?!?!?!?!?!

Það tók mig fokking 4 klukkutíma að fara með rútunni heim á tangann... 4 klukkutíma... ástæðan var sú að heiðin var ófær og við þurftum að fara einhverja afdalaleið. Ekki var sú rútuferð skárri! Það var einhver gamall kall á ská við hliðina á mér sem gerði ekkert annað en að lesa gulnuð dagblöð og stynja! og hann át 9 risarís á leiðinni :o öflugur í súkkulaðiátinu... ég er bara viðvaningur við hliðina á honum :D hehehe...

Já ætli ég nenni nokkuð að skrifa meira...

fer suður næstu helgi í fermingu!

Spurningin er bara hvað maður gerir á laugardagskvöldið eftir fermingu?

Á mar að skella sér á gusgus?

sæti                          sdf                        aæsdkl

Kókómjólk...mmmm...

14. mars 2007 klukkan 10:13
ehh...kannski maður fari að hrista upp í blogginu hjá sér. Það er alveg ótrúlegt hvað ég er kröftugur bloggari...

Semsagt ég er byrjuð að vinna í Kufftulaðin, held nú að flestir viti það...en samt... það er mikill munur að vera komin þangað í staðin fyrir helv*** djö***og svo framvegis sjoppen.
Næstu helgi fer ég úr menningunni í spillinguna í reykjavík. LOKSINS er ég í helgarfríi og get farið suður að hitta Liljuna. Þetta held ég að verði bara nokkuð góð helgi. Sandra komin með bílprófið :) TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ SNÚLLA :D

Síðustu helgi komu Sandra og Lilja hingað á Hvammstanga...og já...þetta varð semsagt tvöföld niðurlægingar helgi! Held að óheppnin sé límt við rassgatið á mér þessa dagana...byrjaði á því að ég og Lilja renndum út í Staðarskála til að fá okkur einn burger og súkkulaði :)aaahh.. nammi. Það var drullu mikil snjókomma.. jah eins og er alltaf í Hrútafirðinum. Þegar við ætluðum að fara heim aftur þá var bíllinn á kafi í snjó... en ég vildi sko ekki fara út að skafa þannig að ég renndi bara rúðunni niður og ýtti síðan snjónum bara út! Ansk... en auðvitað þurfti rúðan að festast niðri! og þarna vorum við í örugglega 40 mínútur að reyna að ná helvítinnu upp og einhver góður kall kom og hjálpaði okkur (dem.. hann var giftur) það endaði með því að við fórum að tala við bensíntittinn og hann gat hjálpað okkur... djöfull var að öflugur... ó beibí!

Daginn eftir fór ég með Söndru í Víðigerði og keyptum okkur bjór... settumst þarna inn og töluðum saman jah... mest um rækjuna...en við gerðum það ekki sjálfviljuguar!!! tek það fram
Síðan þegar við ætluðum að renna aftur á tangann festist bíllinn fyrir utan! það var ENGINN snjór! BARA hálka! en hann bara komst ekki rassgat áfram :P þannig að ég henti Söndru út að íta honum áfram !! hahahaha... og hún datt og hélt smá sýningu fyirr bílstjórana inn sem sátu og hlógu að okkur...! þegar ég komst af stað þá heyrði ég þetta ógeðslega ískur... nei nei... var það ekki bara handbremsan á allan tíman :D hehehehe... og það sem toppaði þetta allt var að ég komst ekki upp á þjóðveginn fyrir hálku! hahaha

æðislegt æðislegt...

En við sjáumst í reykjavíkinni næstu helgi... og það verður sko tekið á því.

bjór

Viðbót
úrslit úr könuninni !

Hvað er ég ?

09. febrúar 2007

Barbapabbi ( 0% / 0 atkvæði )

klaufabárður ( 13% / 2 atkvæði )

brotið rófubein ( 40% / 6 atkvæði )

superman
( 7% / 1 atkvæði )
 
strumpur
( 13% / 2 atkvæði )

kynvillingur ( 20% / 3 atkvæði )

hæna
( 0% / 0 atkvæði )

rykmaur
( 0% / 0 atkvæði )
 
hávaðabelgur
( 7% / 1 atkvæði )
 
úldinn ullarsokkur
( 0% / 0 atkvæði )

Semsagt.... ég er kynvillingur með brotið rófubein! hehehe...

Hvort skrifar maður hiksta eða hixta...?!?

09. febrúar 2007 klukkan 14:45
Nýjustu fréttir af mér :


  • Búin að segja upp í sjoppunni.
  • Búin að klippa og lita á mér hárið... Sandra þú ert snilli ;)
  • Mér er svo kalt á höndunum að ég verð að skrifa þetta með vettlinga
múúúússí .sdfjk


nenni ekki að blogga meir... endilega greiðið aðkvæði í könnuninni minni :D hehe...


kv. Kornelíus

Borðum epli...

01. febrúar 2007 klukkan 23:19
Ég verð bara að segja ykkur frá ljóskunni mér. Ég er alveg að brillera í vinnunni ! ég er stundum svo mikil ljóska að það drepur mig einhvern daginn... í alvöru talað. Um daginn var ég að fara að skúra gólfið í sjoppunni eftir langann vinnudag. 'Eg var búin að setja sjóðandi bullandi vatn í skúringafötu og siðan ætlaði ég að fara að finna einhverja sápu ti þess að skella ofaní þetta vatn. Þegar ég var búin að leita í soldinn tíma þá mundi ég eftir að ég hafði séð stelpuna sem er að vinna með mér taka einhvern hvítan brúsa hjá uppþvottavélinni og nota það í skúringavatinuð. Ég ákvað þess vegna að taka einn af mörgum hvítum brúsum hjá uppþvottavélinni og skella í vatnið og þar sem ég er brussa þá þurfti ég endilega að skvetta innihaldinu á buxurnar mínar og sokkana.
Allt í einu gaus upp þessi feikna fýla.... og ég varð þvílíkt stressuð. Það flaug í gegnum hugann á mér að ég hefði sett blásýru í vatnið, en kannski væri ekki mjög líklegt að blásýra væri geymd í eldhúsi. Ég greip brúsann og las utan á hann....og þar stóð stórum stöfum : KLÓR. Mér létti mikið af því að þetta var ekki blásýra... hehe. En þá leit ég á buxurar mínar og sokkana... og já...það var ekki fögur sjón. Ég held að ég fari ekki aftur í þessar buxur eða sokkana.
Þannig að ég neyðist til þess að kaupa mér nýjar buxur... sem ég er reyndar að gera núna... panta mér einhver föt úr Josefsson lista sem Alma á. Geggjað flott föt í honum...

En já... Þetta er bara eitt ljóskudæmi af mörgum í vinnunni.

haha... eins og einu sinni þegar ég var að taka upp vörur og sá einhverjar ljótar fiskbollur. Ég tók þær náttla upp til að skoða þessar asnlegu fiskbollur nánar og auðvit að get ég ekki skoðað mat án þess að þefa af honum...og það var sko alls ekki góð lykt af þessu! eiginlega bara viðbjóðsleg! og ég bara eitthvað : OJ... DJÖFULSINS ANSKOTANS FNYKUR ER AF ÞESSU!!! og henti þessu burt og það flugu fikskibollur út um allt eldhús...haha. Það var ógisllega fyndið að sjá fiskibollur skoppandi um gólfið eins og skopparabolta... Hlæjandi

En jæja... þetta er allt of langt og leiðinlegt blogg hjá mér.

Borðum epli
namm...epli


(!

23. janúar 2007 klukkan 17:54

Hæ hæ


.....


nenni þessu ekki, til hvers að blogga....það les þetta enginn...


....


..

.

bla bla bla


En allavega...ef einhver les þetta þá sjáumst við bara þarnæstu helgi á ÞORRABLÓTI...EF ég fer. HÆTT AÐ BLOGGA!!




sæti kisi

BARF

09. janúar 2007 klukkan 21:03

þarf alltaf að skrifa eitthvað í titil á hverju einasta bloggi ?!?


ég veit nú varla til hvers ég er að blogga, það er frekar fátt sem gerist í mínu lífi núna!

  • Komin með leið á því að vera á hvammstanga !!! strax... og ég sem á eftir að vera hérna í... 1...2...3..4...5...6...7 mánuði í viðbót ! úff. Það er nú samt fínt að vera hérna. En allt er gott í hófi...ÞAÐ ER SAMT ENGINN BAR! og sundlaugin opnar bara klukkan 4 á virkum dögum.

  • Skráði mig í dag í utanskóla í 2 fögum, Sál 403 og Fél 403. Held að ég sé orðin eitthvað rugluð...útskrifuð og samt ætla ég að læra meira...komst að því að ég þarf bara 2 áfanga í viðbót til þessa að útskrifast af Félagsfræði-sálfræðibraut líka.... þannig að auðvitað tek ég þessa áfanga ( eftir mikla sannfæringu hjá gömlu hjónunum að þetta væri mjög sniðugt)

  • Ég var að pæla...hver er tilgangurinn að hafa stillingu á ristavélinni sem stökkbreytir brauðinu mans í kolamola.. ég er alltaf að brenna helvítis brauðin mín...urr. Það vill enginn éta graflax á kolamola...

  • Það sem gerðist merkilegt í dag = ég sparkaði í þröskuld


Sjá þetta dýr...minni kallinn er svona 190 cm á hæð! Ekki myndi ég vilja mæta þessum stóra í vondu skapi...þetta er brjálaður kisi

Áramót

31. desember 2006 klukkan 20:31
  • Vúhúúúú... allir á áramótadiskótek. Fullkomið fyrir GAMLA fólkið til að rifja upp Bee Gees takta :D þetta verður feiknarlegt stuð Svalur hehe...Kiddi að fara á fyrsta djammið! verð að halda í hendina á honum, hann gæti orðið hræddur,...

  • Búin að kaupa mér fiðluHlæjandi hún er ÆÐISLEG.... hún er rauðbrún á litinn og hljómar æðislega Hlæjandi

  • Keypti mér gleraugu... núna lít ég út eins og bókasafnsvörður! bara svöl...Brosandi

  • Styttist í að ég byrji að vinna! er orðin soldið kvíðin...verð alltaf svo kvíðin þegar ég byrja í nýrri vinnu.

  • Styttist líka í það að Lilja litla krúsímúsíbollan mín flytji suður ! það verður rosa skrýtið að hafa hana ekki... ég verð að heimsækja hana í húsó Glottandi

"..."

23. desember 2006 klukkan 18:11
Sælt veri fólkið!
  • Núna er ég orðin stúdent! pæla í því...það er ógeðslega skrítið...heheHlæjandi skrítið að hugsa til þess að ég þurfi ekki að fara í þessa ljótu rútu á sunnudagskvöldum og verða pirruð við Lilju af því að hún kemur við mig í rútunni Hlæjandi híhí...
  • Komin með vinnu í sjoppunni. Held að það verði bara gaman Hlæjandi
  • Er með ÚTBROT Í ANDLITINU. Notaði eitthvað helvítis hreynsidót ( til að hreynsa andlitið) sem mamma mín á og svo ætlaði ég aldrei að geta sofnað af því að mér fannst vera kviknað í andlitinu á mér ! Ekki mjög gamana af þessu... er búin að vera dunda mér við það að setja einhvern kaktus á andlitið á mér í morgun. Einhvern grænan aló vera kaktus... það er eins og ég sé að maka hori á andlitið á mérÖskrandi jakk... en samt. Andlitið á mér er ekki lengur að brenna...hehe
  • Þarf að fara að sópa gólfið fyrir mömmu Óákveðinn Hún er að elda skötu...yndislegur fnykur hérna inni núna.... eða .... jááá
  • GLEÐILEG JÓL...! Glottandi

Könnun

Hvað á ég að gera ?!?!?!?!?!

Prófíll

  • Nafn: Sólveig Hulda Benjamínsdóttir
  • Staður: Hvammstangi
  • Atvinna: Sjúkrahúsdama...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Prince Kid Funny Images, Nicolas Cage in every single movie Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit Funny Images, Why I’m watching the summer olympics Funny Images, How to answer every True or False quiz

Innskráningar kubbur